Print
PDF
14
Apr

Mótun stefnu um lífræna framleiðslu

Skrifað af: Örn Haraldsson.

Skýrsla starfshópsins Opinber stefnumótun var kynnt á aðalfundi samtakanna í dag, 14. apríl 2012.

Skýrslan er hvatning til stjórnvalda og innlegg til stefnumótunar um lífræna framleiðslu. Skýrsluna má finna hér.

 

Print
PDF
14
Apr

Skýrsla framkvæmdarnefndar - fyrsta starfsár

Skrifað af: Örn Haraldsson.

Hér má finna skýrslu framkvæmdarnefndar um starfsemi samtakanna fyrsta starfsárið (2011-2012).

 

Print
PDF
04
Apr

Aðalfundur 2012

Skrifað af: Ari Hultqvist.

 

Fréttatilkynning

Reykjavík, 4. apríl 2012

Efni: Aðalfundur Samtaka lífrænna neytenda

Fyrsti aðalfundur Samtaka lífrænna neytenda verður haldinn laugardaginn 14. apríl, kl. 14:00 - 17:00, í Reykjavíkurakademíunni, Hringbraut 121, 101 Reykjavík (JL húsinu). Fundurinn er öllum opinn. Þeir sem ekki hafa þegar skráð sig í samtökin munu geta gert það á staðnum en einnig er hægt að skrá sig á heimasíðu samtakanna www.lifraen.is.

Á dagskrá verða meðal annars stofnsamþykktir, bornar fram til formlegrar samþykktar, en þær má finna á vef samtakanna. Skýrsla um mótun stefnu í lífrænni ræktun verður kynnt og afhent Skúla Helgasyni, frumkvæðismanni og formanni nefndar um eflingu græna hagkerfisins. Þá mun Svala Georgsdóttir, úr starfshópi samtakanna Fræðsla og kynningar, formlega taka við embætti fulltrúa framkvæmdarnefndar af Oddnýju Önnu Björnsdóttur, hvatamanni að stofnun samtakanna, en hún baðst lausnar frá því embætti fyrr á þessu ári en mun sitja áfram í framkvæmdanefnd sem varafulltrúi. Í lok fundar mun gestafyrirlesarinn Trine Krebs halda fróðlegt og áhugavert erindi um lífrænan landbúnað í Danmörku en hún hefur víðtæka reynslu og þekkingu á lífrænum landbúnaði þar í landi. Hún er frumkvöðull og hefur haldið fjölda viðburða og fyrirlestra sem tengjast ánægjunni af góðum mat og góðu hráefni sem á uppruna sinn að rekja til leyndardóma moldarinnar.

DAGSKRÁ

13:30 - Húsið opnar

14:00 - Inngangsorð: Svala Georgsdóttir, fulltrúi framkvæmdanefndar

14:10 - Kjör fundarstjóra og ritara

14:15 - Skýrsla framkvæmdanefndar kynnt: Oddný Anna Björnsdóttir, fráfarandi fulltrúi framkvæmdanefndar

14:30 - Reikningar liðins árs lagðir fram: Elín Inga Ólafsdóttir, gjaldkeri

14:40 - Umræða um skýrslu framkvæmdanefndar og reikninga

15:00 - Stofnsamþykktir bornar fram til formlegrar samþykktar: http://www.lifraen.is/component/content/article/1-almennt-efni/68-stofnsamthykktir.html

HLÉ - léttar lífrænar veitingar

15:15 - Skýrsla um mótun stefnu í lífrænum landbúnaði kynnt og afhent Skúla Helgasyni: Örn Haraldsson, fulltrúi starfshópsins Opinber stefnumótun

16:00 - Erindi Trine Krebs um lífrænan landbúnað í Danmörku

16:30 - Umræður um erindi Trine

17:00 - Fundi slitið

Tilgangur samtakanna er að stuðla að aukinni framleiðslu og neyslu vottaðra lífrænna vara á Íslandi með velferð almennings, búfjár og verndun umhverfisins að leiðarljósi.

Markmið samtakanna er að efla miðlun upplýsinga um lífrænar afurðir og framleiðslu þeirra, hvetja til aukinnar neyslu á vottuðum lífrænum vörum, vekja athygli á kostum lífrænna aðferða og nauðsyn bættrar meðferðar búfjár, veita markaðinum aðhald um bættar merkingar og aukið framboð lífrænna afurða, og stuðla þannig að heilbrigðum lífsstíl og heilnæmu umhverfi.

F.h. Samtaka lífrænna neytenda,

Svala Georgsdóttir
Fulltrúi framkvæmdanefndar
lifraen hjá lifraen.is
s: 699-8502