Print
PDF
21
Nóv

Málþing um tillögur að nýrri dýravelferðarlöggjöf

Skrifað af: Oddný Anna Björnsdóttir þann 21 Nóvember 2011.

Samtökum lífrænna neytenda hefur borist tilkynning frá Dýraverndarsambandi Íslands (DÍ) um málþing vegna tillagna að nýjum dýravelferðarlögum sem haldið verður í Norræna húsinu, föstudaginn 25. nóvember nk. kl. 17.00-20.00. Upplýsingar um málþingið má nálgast hér. Í tilkynningunni kemur fram að allir meðlimir samtakanna séu velkomnir.

Starfshópur samtakanna, Velferð búfjár - samkvæmt samkomulagi sl. sumar við Velbú og DÍ - mun standa að sameiginlegu málþingi um frumvarpið þegar samningu þess er lokið en búist er við því að það verði tilbúið á næstu vikum.

Tillögurnar í núverandi mynd er hægt að nálgast með því að smella hér.

Þá er hægt að nálgast umsögn Velferð búfjár um nýju dýraverndunarlögin með því að smella hér.

Við hvetjum sem flesta til að mæta til að taka þátt í umræðu um þessar mikilvægu tillögur sem snerta okkur öll.