Velferð búfjár beitir sér fyrir velferð hreindýra í Flatey á Mýrum
Hreindýr flækt í girðingar - Ólöglegar girðingar
Velferð búfjár hefur á undanförnum dögum beitt sér af miklum þunga við lausn á tveimur vandamálum sem hreindýrum stafa ógn af austur í Flatey á Mýrum.
Fréttir af samföstum hreindýrstörfum í girðingarflækju.
Eftir að fréttir bárust af tveimur hreindýrstörfum, sem höfðu verið fastir saman í ónýtri og ólöglegri girðingu skv. girðingarlögum í Flatey á Mýrum á austurlandi hefur hópurinn unnið ötullega að velferðarmálum hreindýra á þessum slóðum. Svandís Svarsdóttir umhverfisráðherra brást við áskorun fjölmargra úr hópnum um að senda Hjört Magnason dýralækni á staðinn til að svæfa tarfana í þeim tilgangi að losa þá í sundur. Til þess kom ekki þar sem annar þeirra missti hornin áður, líklega vegna átaka við hinn tarfinn. Upphaflega átti hins vegar að bíða þar til tarfarnir felldu hornin í nóv-des. Við það gat hópurinn ekki sætt sig og brást umhverfisráðherra sem fyrr segir við áskorun okkar. Svandísi er þakkað fyrir það.

Fögur hreindýrahjörð blasti við okkur við komuna á staðinn.
Alvarlegasta vandamálið í Flatey á Mýrum og nágrenni á eftir að leysa. Sl. 6 ár amk hafa ólöglegar girðingar valdið hreindýrum þarna stórhættu. Fjöldi dýra hefur fest sig í þeim og 5 dýr hafa drepist þegar þetta er skrifað. Sá dauðdagi hefur verið langur og kvalarfullur. – Allt þetta aðgerðaleysi er að mati hópsins í andstöðu við dýraverndarlög.
Til að reyna að leysa girðingarmálin fóru fulltrúar úr hópnum austur sl. laugardag. Það voru þau Árni Stefán, Linda Rán og Kristín Cecilsdóttir. Auk okkar fóru fulltrúar frá Náttúrverndarsamtökum Austurlands (NAUST) þau Rósa Björk Halldórsdóttir, Ásta Þorleifsdóttir og Einar Þorleifsson. Sjá umfjöllun þeirra um málið hér.
Fundahöld og vettvangsskoðun
Við áttum fund með bændum á svæðinu og fórum í vettvangsskoðun. Niðurstaðan var sú að þarna er ófremdarástand í girðingarmálum. Girðingar liggja niðri út um allt og eru hreindýrum stórhættuleg. Ástæða þess að hreindýr ryðja niður girðingum er einföld. Þau eru svöng og sækja í beitalöng bænda. Girðingar bænda eru of lágar eða 120 cm. Ef þær væru hærri eða 150 cm kæmust dýrin ekki á beitilöndin. Um það voru allir sammála.

Frá fundi aðgerðarsinna um kvöldið.
Frá vinstri Kristín Cecilsdóttir (SLN-VB), Rósa Halldórsdóttir (NAUST), Skúli Benediktsson hreindýraleiðsögumaður, Einar Þorleifsson (Náttúruvaktin), Linda Rán (SLN-VB), Sigurður Guðjónsson bóndi,Ásta Þorleifsdóttir (NAUST)

Í framhaldi af 900 km og 14 klst. ferðalagi okkar sendum við erindi til sveitarstjórnar Hafnar í Hornafirði með áskorun um tafarlausar aðgerðir af hálfu sveitarstjórnarinnar enda ber er henni skylt skv. girðingarlögum að sjá um að fjarlægja svona girðingar geri bændur það ekki. Hópurinn benti á að ef sveitarstjórnin brygðist ekki við án tafar yrði gripið til annarra lögboðinna aðgerða. Þá var sent erindi til innanríkisráðherra Ögmundar Jónassonar og skorað á hann að fylgja málinu eftir en ráðherra á að hafa eftirlit með því að sveitarfélög vinni samkvæmt því, sem lagt er fyrir þau að gera í sveitarstjórnarlögum.
Þegar þetta er skrifað liggja fyrir trúnaðarupplýsingar, sem gefa góðar vonir um að þetta mál leysist loksins á farsælan hátt. Þegar þær upplýsingar verða gerðar opinberar verður greint frá því.
Niðurstaða
Yfirgnæfandi líkur eru á því að vinna hópsins og annarra sem hafa komið að málinu á þeim 11 dögum, sem liðnir eru frá því að málið kom fyrst fyrir sjónir almennings í gegnum fjölmiðla hafi borið árangur og tekist hafi að lenda því markmiði að velferð hreindýra verði tryggð í Flatey á Mýrum. – Þá stendur til að halda málþing um málefni villtra dýra innan skamms í samvinnu við Náttúruverndarsamtök Austurlands og vonandi fleiri. Það verður kynnt síðar.
Sérstakar þakkir færi ég Lindu Rán, Kristínu, Óskari og Oddnýju auk þeirra sem studdu okkur og hvöttu í tölvupósti. Sömu þakkir fær NAUST fólkið.
Sjá má söguna í ljósmyndum á slóðinni www.arnistefan.com/hreindyr
Lesa má bréf okkar til sveitarstjórnar Hafnar í Hornafirði með því að smella hér.




